fimmtudagur, október 29, 2009

ný gleraugu !

já þar kom að því að ég lét til leiðast eftir nokkra vikna stanslausan hausverk.  Ég kíkti til sjóntækjafræðings sem mældi augun mín og gleraugun og hristi svo bara hausinn og sagðist skilja vel að ég væri með hausverk og horn út um gagnaugun.  Þessi horn er Anna mín búin samviskusamlega nudda og hjálpa mér, og já skipa mér að fara til augnlæknis eða sjóntækjafræðings.  En auðvitað þegar maður er ekki alveg að drepast þá lætur maður þetta liggja á milli hluta. 

Eníveis.  ég er víst með sjónskekkju og búin að vera með lengi.  Svo ég kaupin ný gleraugu með aðstoð pabba og vá – dagur 3 núna án  hausverks! þetta er snilld.  Er enn samt með smá seiðing, en fróðar konur segja að það taki alltaf smá tíma að venjast nýjum gleraugum.  En hornin eru að fara :o)

1 ummæli:

Solla sagði...

Til hamingju með nýju gleraugun. Gott að þú ert að losna við hornin, getur hætt að vera lítill púki :)