búin að skreyta nema jólatréð- það fer ekki upp fyrr en eftir afmælisveislu Gabríels. Ég skreyti ekki mikið – mér finnst svo leiðinlegt að unskreyta, svo seríur, dúkar og jólastyttur hér og þar og íbúðin er obbosslega kósí :o)
Kakan bökuð, verður skreytt í dag eftir klippingar.. já við erum að fara bæði í klippingu og hann bað um grænan hanakamb…. ??
1 ummæli:
Arndís Dúna (6 ára) bað um að láta raka af sér allt hárið í sumar. Ég sagði að hún mætti gera það þegar hún yrði stór. Reyndar langaði mig alveg að sjá hana rakaða, held hún hefði verið mjög flott, það bara tekur svo langan tíma að vaxa og mér datt í hug að hún myndi vilja sítt hár daginn eftir.
Tveimur mánuðum eftir að hún bað um að láta raka sig ætlar hún að safna síðu hári. Erfitt að ákveða sig þegar maður er 6.
Er samt ekki allt í fínu að láta gera smá hanakamb á gæann og spreyja hann grænan?
Skrifa ummæli