hæ hæ - ég er ógó dugleg - það eru komnar myndir á flikkrið mitt:
En þetta eru bara brotabrot af myndnunum. Ég tók 429 myndir... Svo ef einhvern langar að sjá meira þá er bara að kíkja í kaffi :o)
Við sonur erum heima núna. Komum heim í gær. Ákvað að taka einn dag heima þar sem vaknað yrði klukkan sjö til að venja við. Og það var ekki auðvelt. Svo við verðum vonandi fyrr sofnuð í kvöld :)
Ótrúlegt að sumarfríið sé búið - 5 vikur búnar. En ég er svo ánægð með þessar 5 vikur. Þetta var snilld frá byrjun til enda. Útilegur, skoðanaferðir, afslöppun, sveitin, vatnið, fólkið, Holland.
Gaman að vera til !!!
2 ummæli:
Velkomin heim aftur dúllan mín - greinilega frábær ferð hjá þér!
Ég er hundfúl yfir því að hafa misst af þér í Rvk. Var föst með fjölskyldunni útá landi... usss!!
Gabríel hefur örugglega fengið vikuskammt af knúsi frá þér við endurfundina...
Loveya
jámm ég var knúsuð til baka af guttanum :) þú verður bara að kíkja í kaffi til mín og skoða restina af myndunum - var að baka kanilsnúða og nýlagað kaffi!
Skrifa ummæli