mánudagur, október 19, 2009

Bara róleg.

átti góða rólega helgi með syninum.   Hittumst í bíói, við Freydís með krakkana og svo hittum við Elísu á kaffihúsi á eftir.  Afskaplega notalegt eitthvað.  bakaði pizzu, horfði á videó, kubbaði, fór á fótboltaæfingu með tvo 4ára, átak. Straujaði lappann, hann var held ég stútfullur af vírusum, allavega er hann miklu sprækari núna.  Skúraði, eldaði hangikjöt. 

Vídeókvöldið okkar var yndislegt.  Eftir að við snæddum gómsæta heimatilbúna pizzu – sem sonur hjálpaði mér með, sátum við með popp og kók og horfðum á Leiftur McQueen Disney myndina, hún er alveg uppáhalds ennþá hjá mínum manni.  Svo þegar þessi elska er að fara að sofa – knúsar hann mig og þakkar mér fyrir vídeókvöldið, mamman þessi fékk smá tár í augun…

jámm bara svona sitt líti af hverju á annars afskaplega afslappaðri, rólegri notalegri helgi :o)

3 ummæli:

Anna Geirlaug sagði...

Flott hjá þér...var þetta restin af Fellshlíðarkjöti?

Solla sagði...

Vildi bara kvitta, svona til að þú vitir að ég les bloggið þitt.

Gaman að fylgjast með þér.

Solla

Guðrún K. sagði...

aww takk fyrir að kvitta :) gaman að vita að þetta sé enn lesið :)
jámm anna þetta var sko fellshliðarkjöt yummmie!!!