í gær átti mín yndislega vinkona Ragga afmæli ! Sendi stórt knús til þín mín kæra út til Rotterdam. Fergal og Svava mega fá smá af því líka !! knús knús – vonandi áttirðu góðan dag og var dekrað við þig allan daginn !!
Í dag á Anna mín afmæli! Til hamingju með daginn elsku vinkona !! hlakka til að sjá þig í dag og knúsa þig !!!
Til hamingju með afmælin ykkar elsku Ragga og Anna !!
Annars er helgin framundan. Margt planað og mikið að gera. Erum að fara í sveitina við Gabríel. Ætlum að taka tjaldið með og æfa okkur í að tjalda því. Annars erum við klár í útilegur. Planið er að hafa þetta bara reddí í bílnum þá er hægt að fara í útilegu hvenær sem er þegar veður er gott :o)
Sonur er alltaf jafn kátur !
1 ummæli:
Takk kæra vinkona :D ég vona að þú og prinsinn þinn eigið ánægjulega helgi í sveitinni. Kossar og knúsar frá Röggu og Co
Skrifa ummæli