Við sonur áttum yndislegan dag. Vöknuðum snemma, hann meira að segja vaknaði á undan mér og fór fram að leika sér áður en hann vakti mig. Fórum út á róló- hann fékk að hjóla sjálfur - og það sló bara í gegn. Kakó á eftir að hans ósk.
Við urðum bæði fyrir nap attack, og sváfum til fjögur! Fórum þá út á rúntinn og fengum okkur ís - í tilefni snjókomunnar hahahaha - ég held ég sé búin að tína því varðandi þessa helvítis snjókomu og skítakulda. Eins og sonur segir - sem ég hugsa að hann hafi lært uppi í sveit "aumingja fuglarnir - þeim verður svo kalt á rassinum sínum... "
en sætasti strákur:
Og ég var að bæta inn myndum á flikkrið mitt :o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli