jamm - allt pakkað og partur kominn til Önnu sem við ætlum í samfloti með. Bara eftir að fara í Bónus og ná í nokkrar nauðsynjar (svala og kókómjólk) svo klukkan fimm verður sonur sóttur í skólann, heim og kæliboxið stöffað með mat og góðgæti. Ég bý svo vel að ég átti í kistunni grillkjöt, pylsur, pylsubrauð og fleira. Hlakka þvílíkt til. Það var svo gaman í fyrra með Hafdísi og Gabríel finnst þetta svo gaman. Verðum í Fossatúni fyrir sunnan með fullt af EJSurum bæði héðan og úr Reykjavík! Góður hópur þar á ferð :)
Gabríel er þvílíkt spenntur. Hann hitti þau Önnu og strákinn hennar Heiðar Örn í gær og var voða feiminn, en fannst Heiðar Örn flottur strákur - hann átti svo mikið flott dót!!
Annars er í fréttum að pabbi á afmæli á morgun - 60 ára !! Og þar sem við sonur verðum fjarri öllu góðu gamni þá óskum við honum hjartanlega til hamingju með daginn á morgun!! Vonum að hann eigi góðan og rólegan dag! Knús og kossar til þín pabbi minn!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli