bara láta vita af okkur - við erum í góðu yfirlæti hjá mömmu og pabba. Alveg yndislegt veður - sól og sumar og fuglasöngur! Enda við sonur orðin heldur brún og sæt. Sonur með kútafar á handleggjum, bolafar á hálsi og rjóður í kinnum!!
myndir komnar á flikkrið okkar!!
Við erum komin með tjald og ætlum í útilegu næstu helgi. Það er áætlað að fara á Bakkaflöt en eitthvað af ættingjum ætlar að hittast þar og tjalda. Ef þau ætla að láta eins og í fyrra og færa sig eftir sólinni þá veit ég ekki alveg hvað við gerum en við ætlum í tjald einhverstaðar og mér er sossum alveg sama. Það er alltaf gaman hjá okkur Gabríel. En suður fer ég ekki aftur í útilegu. Allt of langt að keyra svo nýkomin úr útilegu úr Fossatúni.
Í dag fengum við frábæra heimsókn - Inga Hrund, Kári og Anna Valgerður mættu og stoppuðu hjá okkur smá! Var frábært að hitta þau!
Og svo svona í tilkynningarrest: Hafdís vinkona átti litla stelpu í gær!!! Til hamingju elsku vinkona og Jobbi og allir !!! Yndislega til hamingju og mikið hlakka ég til að hitta þessa litlu dömu !!!
Knús frá okkur úr sólinni!
1 ummæli:
Það er svo heiðskírt að það lítur út fyrir að vera gervi :)
kk
Solla
Skrifa ummæli