Já við sonur áttum yndislegan dag í dag. Ég geri greinagóða lýsingu á honum á síðu sonarins og er búin að adda myndunum á flikkrið okkar. Það fer rosalega vel um okkur þessa fyrstu viku í sumarfríinu okkar og ég hlakka bara til að halda áfram í fríinu !!
Hann kom rosalega vel úr 3 og 1/2 árs skoðuninni sinni með flotta sjón og góðan þroska, "á undan aldri" orðaði læknirinn það. Stór og myndarlegur sonur minn - enda ég afar stolt af honum !!
Verð ein heima um helgina. Ekkert ákveðið hvað skal gera. Kannski kíkja út - kannski bara njóta þess að vera heima, fara í sund og sleikja sólina. Er opin fyrir öllu - aðalatriðið er að njóta þess að vera til.
Vona þið eigið góða daga líka!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli