já sonur minn tók upp á því allt í einu að fá pest. Kom svo aftan að mér þar sem hann var svo hress í gær. Vesen í nótt og hiti og læti í morgun. þegar hann skríður aftur uppí ból eftir miðdeigislúrinn sinn þá er hann lasinn þessi elska.
Það er erfitt að vera inni í þessu góða veðri. Hann talar um að hann langi út, ég skil hann svo vel. Yndislegt sumarveður hérna á Akureyri í dag. Svo við erum heima - Bubbi Byggir og Svali er eina sem blívar :o)
1 ummæli:
En leiðinlegt að hann sé veikur. Ef ykkur vantar eitthvað endilega láttu okkur þá vita :)
Skrifa ummæli