jámm sonur fór til pabba síns í gær. Kom heim eftir vinnu og slakaði mér alveg niður. Fór og hitti svo tvær hressar á kaffihúsi sem endaði á trúbbakvöldi á kaffi akureyri. Það var bara hin besta skemmtun og var ég að koma heim um hálf tvö í nótt. Var á mínum súbba og drakk mitt te og söng með góðri tónlist :o)
Helgin framundan. Ætla að taka því rólega í kvöld. Kannski wow’ast smá, njóta þess að vera til, fá mér kannski snakk og horfa á góða ræmu.. sofa út á morgun. Liggja í bælinu og horfa á nýja efnið á flakkaranum (despó og NCIS) Svo koma tvær hressar í bauka á laugardagskvöldið og við á dansiball :o) Það er bara gaman að vera til þessa dagana!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli