og er hrikalega sæl með það. Er reyndar ekki búin að skíra það eins og Dóa mín skírir sitt hjól, en ég er allavega mjög ánægð með það. Fórum í morgun út að hjóla við sonur og vorum komin út um níu ! Og hjóluðum til ellefu. Æfðum okkur að hjóla í leikskólann. Stoppuðum í bakaríi og sumir fengu kókómjólk og kleinuhring. Og það var rosalega gaman hjá okkur :o)
Í dag er planað að fara í bíó, á Stígvélaða köttinn. Svo ætlar sonur til pabba síns og vera þar um helgina.
Mér er boðið í afmælisteiti annað kvöld og það verður örugglega mikið gaman.
Eigið góða helgi!!
- ef vel er gáð má sjá soninn renna sér í rennibraut í bakgrunninum :o)
1 ummæli:
Til lukku með hjólið, þetta er greinilega fagur fákur! :)
Skrifa ummæli