föstudagur, september 21, 2007

Ný lína...

______________________
og hér með dreg ég nýja línu í mínu lífi....
Ég kláraði að opna fyrir þær tilfinningar og sárindi sem ég hef og hafði byrgt inni síðan í sl desember. Ég sagði mínum fyrrverandi alveg hvernig mér leið, líður og hafði liðið. Hlutir sem ég hafði setið með og setið á alla þessa mánuði.
Ég vona að hann nái að skilja og virða það sem ég hef sagt honum, að hann virði mig, komi á móts við mig svo við getum átt heilbrigð og eðlileg samskipti Gabríels vegna. Ég er búin að hreinsa fyrir mínum dyrum. Og núna er ekkert nema horfa framávið og hlakka til nýrra og spennandi hluta í lífinu!

3 ummæli:

Dóa sagði...

Flott lína! :)

Stattu þig stelpa, við vitum að þú getur þetta svo vel!

Njóttu helgarinnar!

Knús frá útlandinu!

Raggan sagði...

Heyr heyr! Sammála síðast ræðumanni og gott betur :)
Þú ert að standa þig svo vel!
Bestu kveðjur frá sama útlandinu og síðasti ræðumaður.
Þín vinkona Ragga

J?hanna sagði...

Nú hlýtur að vera fargi af þér létt enda ekki svo lítið sem gekk á.

Ég hef 120% trú á þér og hef alltaf haft og nú "víkur það gamla svo hið nýja kemst að" ;)

Luvya