miðvikudagur, mars 18, 2009

Morgunverður á Flúðum

Alltaf gott að byrja daginn á að kíkja í kaffi á Flúðir.  Eiga góða morgunstund með Gabríel.  Maður verður eitthvað svo endurnærður.  Þau bjóða reglulega í morgunverð og kaffi á eftir.  Og við sitjum inni í sal sem þau borða börnin með þeim og fáum okkur morgunmat og spjöllum.  Virkilega gaman.  Gabríel sýndi mér dótið sem honum finnst gaman að leika sér með og við bjuggum til bílabraut.  Virkilega notalegt. 

Sylvía elskuleg kom í heimsókn í gær.  Hún var að vinna til sjö og kom svo í pizzu til okkar Gabríels.  Mjög gaman að fá hana í heimsókn og Gabríel alveg naut sín í botn við að sýna henni dótið sitt og bílana.

gaman ad mala

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ frænka, kíki annaðslagið á bloggið þitt, svo gaman að lesa um ævintýri ykkar mæðgina, svo ertu svo jákvæð og skemmtilegur penni :D.

Sjáumst :)

kv. Linda