föstudagur, september 16, 2011
sumarið mitt...
búin að eiga snilldar sumar ! en er bara ekki alveg reiðubúin fyrir veturinn strax. Sonurinn byrjaði í öðrum bekk og er afar sæll með þetta.
Helstu fréttir sumars eru þær að ég keypti íbúðina mína í Hjallalundinum. Stór ákvörðun, en góð. Mikið leið mér vel eftir að ég ákvað að taka stóra skrefið og verða fullorðin. Sá mig heldur ekki vera að fara neitt næstu árin á meðan sonurinn er svona ungur. Honum líður svo vel, ánægður í skólanum, góð regla á helgum með pabba hans og ferðirnar okkar í sveitina. Ég er ánægð í vinnunni, svo hvað annað þarf til ? Kostirnir eru miklu fleiri en gallarnir.
vona að þið eigið góða helgi sem enn kíkið hér inn reglulega. kannski ég ætti nú að bretta upp ermar og nota þetta blogg mitt aðeins meira ?
föstudagur, júní 17, 2011
17.júní…
Og það er rigning, og ekki einu sinni hátíðarhöld í sveitinni. En who cares. Komin í sumarfrí. Bústaður á sunnudaginn. Væri samt alveg til í að fara bara í dag.
föstudagur, febrúar 11, 2011
hvar er sumarið.. ?
Veit ég er löt að blogga þessa dagana. Ekki að það sé mikið að gera, dagarnir hverfa bara. Ljósi punkturinn að eftir hvern dag þá er einu degi styttra í sól og sumar...
fimmtudagur, desember 16, 2010
Jólin eru að komaaaa!!
og það eru bara 8 dagar þangað til ! Dásamlegt alveg
Er að verða búin með jólagjafir, þe ég er búin að kaupa og gera allt, bara eftir að pakka. Sendi eina suður og er að vona að ég meiki að koma henni á póstinn á morgun, þá er þetta allt í höfn.
Við höldum upp á afmælið hans Gabríels í dag – bjóðum nokkrum strákum úr bekknum hans, verður eflaust mjög mikið stuð.
Annars reyni ég að láta dimmuna og kuldan ekki hafa áhrif á mig í desember. Nóvember var nógu erfiður; langur, dimmur og kaldur. Núna er aðventan með jólaljósum og jólalögum og piparkökum og kertum. Dagarnir fara að lengjast aftur – eftir bara 5 daga !
Þar til næst – látið fara vel um ykkur og ekki stressast of mikið; jólin koma þó það sé smá ryk í hornum!
mánudagur, október 25, 2010
mánudagur, október 04, 2010
Prince of Persia
Hafði það loksins af að horfa á þessa blessuðu mynd Prince of Persia. En OMG… ég þarf að horfa á hana aftur því Jake Gyllenhaal er svo flottur að ég náði ekkert að fylgjast með myndinni sjálfri….
miðvikudagur, september 22, 2010
93 dagar til jóla
og 29 dagar til Riga ferðarinnar og bara 17 dagar í Rocky Horror sýninguna…
Nóg um að vera það vantar ekki. En ég er voðalega andlaus eitthvað. Maður bara vaknar, fer á fætur, í vinnu og svo heim.. gæti verið út af því að það er búið að vera “pastavika” allann mánuðinn ?
Sonurinn er alltaf jafn kátur. Duglegur í skólanum, labbar sjálfur og er alltaf kátur þegar ég sæki hann. Lífgar upp á tilveruna þessi elska.
Það er skítakuldi, snjóslæður yfir fjöllum og heiðum í kringum mig. Mig langar ekkert til að fá vetur og myrkur… kannski er bara það sem er að bögga mig ?
En ég finn alltaf ljósu hliðarnar; fyrst að skammdegið er að skríða yfir með kulda og vetri þá eru bara 93 dagar til jóla (9 sunnudagar í það að maður geti sett upp jólaseríur), 29 dagar til Riga og 17 dagar í Rocky Horror ! :)
Lífið er snilld :)
laugardagur, september 18, 2010
laugardagur, september 04, 2010
fimmtudagur, ágúst 19, 2010
mánudagur, ágúst 16, 2010
miðvikudagur, ágúst 04, 2010
Dimmuborginr 04.08.2010
Fórum svo í Vogafós - kíktum á kálfana. Agalega sætir kálfar.
Dásamlegt að vera í sumarfríi !
þriðjudagur, ágúst 03, 2010
Kárahnjúkarúntur 31.júlí 2010
fimmtudagur, júlí 29, 2010
alveg að hafast.
“á morgun á morgun” er það eina sem kemst að hjá mér núna. Ég fer í frí á morgun. Ég er gjörsamlega komin með upp í kok og algjörlega búin með alla orku sem ég á til. Er búin að njóta þess að vera ein í vinnunni, hlusta á tónlistina mína og hafa það fínt. Líka heima, búin að njóta þess en ég er farin að sakna guttans heldur mikið núna og hlakka óskaplega til að fá hann heim á morgun.
Síðustu helgi sátum við vinkonurnar úti á svölum með hvítt og sushi. Afskaplega notalegt, dönsuðum smá á Pósthúsinu á eftir.
Ættarmót á Reynisstað á laugardeginum, gaman að hitta alla þar, grillað, spjallað og hlegið. Mjög gaman :o)
Svaf út á sunnudag. OMG hvað það var mikil snilld !
En á morgun – á morgun eftir vinnu er ég komin í sumarfrí. Litla mömmu hjartað mitt er samt smá stressað yfir því að sonurinn er að fara í skóla í haust. Ætla að fara með hann á morgun og leyfa honum að velja sér skólatösku, og kaupa svo liti og dótið ofaní hana :) – töskurnar eru sko á tilboði núna í Eymundsson, þessar góðu með bakstuðningnum og smellunni yfir brjóstkassann, auk þess eru þær með nestisboxi og brúsa. Minn maður verður ekkert smá stoltur þegar hann fær að velja sér tösku, hann er svo spenntur fyrir skólanum :)
þriðjudagur, júlí 20, 2010
ein í heiminum
- eða nei ekki alveg en stundum er það afskaplega líkt því. Gabríel er hjá pabba sínum og allir í vinnunni eru í fríi. Ég er nánast ein í öllu Rarik húsinu. En það er bara notalegt, hlusta á tónlistina og hef það gott.
Er þó farin að sakna sonarins. Hann er búinn að vera að heiman í viku og á eftir að vera í burtu í tvær í viðbót. Hann er án efa að njóta þess að vera með pabba sínum :o)
Fór síðustu helgi austur á firði. Þangað hafði ég ekki komið síðan ég flutti þaðan 8. desember 2006! Og það hríslaðist um mig einhver tilfinning þegar ég kom niður af Fargradal í Reyðarfjörðinn. Ég fór með vinkonu minni Freydísi að heimsækja Eygló og Sólveigu – bara ef það hafði farið framhjá einhverjum á facebook hehe. þetta var snilldar helgi- hreint út sagt dásamleg.
Við fórum að skoða álverið á laugardeginum og það var bara snilld. Allt er svo stórt og það er svo heitt þarna. Fengum að fylgjast með ferlinu, frá því að það er í kerjunum, flakkið í deiglunum og vinnsluni í steypuskálanum. Og álið er svo ótrlúlegt svona fljótandi, gæti staðið og starað endalaust á það glóandi heitt, fljótandi glitrandi …
Fórum og skoðuðum steinasafnið á Stöðvarfirði. Hafði aldrei komið þangað. Alveg agalega gaman að skoða það.
Við keyrðum rúnt í gegnum Fáskrúðsfjörð og stoppuðum á Sumarlínu til að fá okkur að borða. Ég fékk smá hnút í magann við að sjá húsið mitt, en þegar ég heyrði að það hafði fólk keypt það sem væri búið að taka það alveg í gegn þá leið mér betur. Þau hafa bara fínisserað efstu hæðina, tóku mið hæðina í nefið og eru að byrja á kjallaranum. Eygló vinkona þekkir stelpuna sem keypti það og sagði að það hefði ekki verið neitt mál að banka uppá ef hún hefði ekki verið að vinna. Svo komst ég að því að þegar við vorum að skoða álverið þá hitti ég þessa stelpu þegar Eygló og Freydís voru að reykja. Mér þykir svo ótrúlega vænt um þetta hús, en það er í góðum höndum :o)
Ég hef alltaf talað um það að ég væri til í að flytja aftur austur. En eftir þessa ferð mína þá komst ég að því að það er ekkert þar sem kallar á mig. Fékk bara svona pjúra closure þegar ég var að keyra í burtu frá Fáskrúðsfirði. Og vá hvað það var frábær tilfinning, klappaði Freydísi á öxlina og sagði henni að hún sæti uppi með mig hérna á Akureyri. Enda á ég yndislegt líf hérna á Ak í dag !
knús á ykkur ! Myndir:
http://www.flickr.com/photos/gudrunkv/sets/72157624406743231/
mánudagur, júlí 05, 2010
þriðjudagur, júní 08, 2010
sólríkir sumardagar
er búin að eiga dásemdar daga núna í dag og í gær. Reyndar á ég yfirhöfuð nokkuð oftast dásemdar daga – þegar fólk böggar mig ekki of mikið hehe
en þessi yndislega sól er bara að gera dagana dásamlega ! Í gær fórum við Gabríel með Freydísi vinkonu og hennar börnum út í Kjarnaskóg. Við grilluðum og krakkarnir óðu í læknum og urðu blaut og skítug. Sonur minn allavega naut sín í botn. Strákagenið í honum alveg í essinu sínu þarna, með sorgarrendur á öllum 10 nöglum, skrápuð græn hné og rispaða fótleggi og svo grútskítugur frá toppi til táar. Og hann einn sólskins bros. Það gefur deginum bara gildi!
Í dag fórum við sonur í sund eftir vinnu/skóla. Ég varð að leggja barnið í bleyti þar sem sturtan og skrúbbið mitt í gær dugði ekki til á grasgrænu hnén og sorgarrendurnar undir 10 nöglum. Sem góð mamma setti ég hann samt í hreinum fötum í skólann, en málið er að þessir drengir ná að vera í hreinum fötum frá hurðinni heima og varla út að bíl á svona sumardögum…
Við grilluðum okkur hamborgara og sonur sofnaði hálf átta, búinn á því. Og þessir dagar hafa þau áhrif á mig að ég hreinlega nenni ekki að vera í tölvuleikjum sjálf. Er bara að njóta kvöldsins, les, horfi á góða sakamálaþætti og fer sjálf snemma, þreytt í bælið. Kíki á veðurspánna fyrir morgundaginn; jú það á að vera gott veður á morgun líka :o)
miðvikudagur, júní 02, 2010
eins og í gamla daga
í gær var ég að vesenast með að einu sinni þá var lífið miklu einfaldara. Ég átti mína tölvu, leigði mitt herbergi og spilaði minn tölvuleik og var ekkert að brasa með skóla, barn, peningaáhyggjur, bílamál, íbúðarmál og allt þetta sem herjar á mann í dag ( þe fylgifiskur að verða fullorðin)
En svo þegar sonur var sofnaður þá tók ég fram gamlan leik sem ég hafði keypt rétt eftir að ég byrjaði að spila WoW, og komst greinilega aldrei í að spila hann. Þetta er síðasti leikurinn úr Might and Magic smiðjunni og auðvitað varð ég að eiga hann til að eiga allt safnið (já á alla 10 might and magic leikina… hmm kannski gæti sett eldri leikina í gamla vél og farið að kenna Gabríel…. ok nú er ég komin út fyrir bloggið haha….)
Ég setti hann í og ég hreinlega gleymdi mér, vá hvað ég skemmti mér vel.. og ég upplifði aftur þessa sömu afslöppunar tilfinningu. Nördinn kom aftur upp í mér og ég sat með gleraugun á nefinu og naut mín.
þriðjudagur, júní 01, 2010
fann gamla síðu sem ég bjó til
dagur sem ég og Kítara gamli hundurinn minn áttum saman á Fásk eftir að það snjóaði í heila 2 daga þannig að það var varla hundi út sigandi. Hún allavega hélt í sér nánast allan laugardaginn þar sem það var svo brjálað veður!
snjódagur á Fásk: http://snjodagur.tripod.com/
Þessar myndir á ég ekki lengur á vélinni minni þar sem þær glötuðust þegar diskurinn hrundi, hrikalega er ég kát að finna þessa síðu !!
mánudagur, maí 31, 2010
Myndir úr brúðkaupi komnar inn :)
Ég tók nokkrar myndir í brúðkaupi þeirra Jóhönnu og Jóa. Þetta var alveg hreint frábær stund.
Dásemdar helgi
átti yndislega helgi. Fór suður á laugardag og var viðstödd giftinu góðrar vinkonu. Athöfn og veisla alveg snilldin ein! Er svo gaman að taka þátt í svona stórum dögum hjá þeim sem manni þykir vænt um. Var frábært veður og dagurinn alveg meiriháttar :o)
Fór svo upp í sveit þegar ég lenti á Akureyri í hádeginu í gær. Hjálpaði pabba að marka það sem var borið og allt sett út í góða veðrið.
Var lúin þegar ég kom heim í gær, pantaði mér pizzu og setti lappir upp í loft í Lazy boy og horfði á TV.
Mikið hlakka ég til að fá mömmu knúsið mitt á eftir :o)
fimmtudagur, maí 27, 2010
Hvítasunnuhelgin
var fín, vorum í sauðburði. Kíkti til AK á smá djamm með skvísunum og kom aftur í sveita sæluna á sunnudag. Gabríel með hjólið sitt, og það tók upp mestan áhugann hjá honum. Það var ekki fyrr en síðasta frídaginn (þriðjudaginn) sem hann vildi bara vera í afslappinu og horfa á barnaefnið. Annars var hann farinn út að hjóla eða með okkur upp í hús , svaka duglegur :o)
Tók Orlofsdaga þrið og mið til að aðstoða heima, bara fínt :o)
miðvikudagur, apríl 21, 2010
sumar á morgun.. ??
- nei ég held ekki…
Og ég er að kafna úr bloggleti. Enda ekkert mikið um að vera. Djammaði reyndar slatta um páskana – hrikalega gaman.
Fór á tónleika með Dikta 9. apríl með Önnu vinkonu, hrikalega gaman.
Náði mér svo í nokkradaga flensu – ekki svo mjög gaman…
annars er ekkert að frétta…
þriðjudagur, mars 30, 2010
Frábær helgi og páskar framundan
átti alveg snilldar helgi í borginni. Vinkona mín Eygló kom með mér og við skemmtum okkur snilldar vel. Mikið labbað, kjaftað og verslað. hjalpar til að tína veskinu sínu á djamminu – þá eyðir maður ekki eins miklu í brennivín, og ekki skemmir að finna veskið í óskilamunum á Broadway svo maður geti verslað almennilega í þynnkunni !
Og núna eru páskarnir. Sé frammá að vera heima. Slappa af ein heima. Sonur fer til pabba síns. Skutlast í sveitina í steik til mömmu og pabba. En það er nóg um að vera hérna á Ak.
Er svo fegin að pabbi Gabríels býr hérna á Ak núna. Já fyrir nokkrum árum (nánar tiltekið 3) þá hefði það ekki hvarflað að mér. En þegar ég flaug suður og heim aftur um helgina þá var meginhluti farþeganna börn yngri en 10 ára. Jafnvel kríli á aldur við son minn. Merkt í bak og fyrir með hálsböndum og flugfreyjurnar hafa varla undan við að passa krakkana. Öll áttu þau það þó sameiginlegt að þau voru til fyrirmyndar í vélinni, þæg og flott. Harður heimur fyrir þessi börn að hitta kannski annað foreldrið sjaldan og þurfa að fljúga landshorna á milli til þess. Gabríel gat hoppað yfir til pabba síns um helgina því ég þurfti úr bænum. það er ómetanlegt fyrir “skilnaðarbörnin” að geta hitt báða foreldrana án mikillar fyrirhafnar.
sunnudagur, mars 21, 2010
fimmtudagur, mars 18, 2010
.. and thanks for all the fish..
Þetta er skuggalega fljótt að líða ! kannski er það bara þessi árlega afmæliskrísa sem læðist upp að manni og “booo” þannig maður flörgrar upp af værum doða.. Á enn eftir tæpa viku í að verða alvöru fullorðin.. samt finnst mér ég ekki degi eldri en þegar ég átti soninn fyrir 5 árum síðan. Hann stækkar og þroskast en ég bara er ennþá í sömu sporum.. hmm…
mánudagur, mars 01, 2010
já já – og febrúar…
ok – það er bara nóg að gera og ekkert fréttnæmt – kannski nota ég facebook líka of mikið gætiverið.
En við erum hress og hraust og kát . Ekkert nýtt að frétta bara gaman að vera til :o)
núna er kominn mars semsagt, bjórinn á 21. árs afmæli í dag, nokkur önnur afmæli í mánuðinum, árshátíð í enda mánaðarins og svo páskar í byrjun aprí – þá fer sumarið alveg að koma :D
fimmtudagur, janúar 21, 2010
og janúar að verða búinn
var að fatta að það er kominn 21 janúar- fyrsti mánuður ársins að verða búinn. Þetta er að liða svo allt of hratt.
En okkur líður alltaf jafn vel. Sonur bara stækkar og stækkar. Búin að vera heldur róleg í janúar hvað varðar skemmtanir. Búin að njóta þess að vera heima og slappa af.
Og framundan er Þorrablót í Reykjadal. Ákvað að fara ekki á blótið í Mývó þar sem maður verður að halda utan um peningana sína heldur fast. Kannski líka ástæða þess að djammið hefur verið í minna lagi.
fimmtudagur, desember 24, 2009
miðvikudagur, desember 23, 2009
Þorláksmessa
og allt klárt :o)
Er í vinnunni í dag – en hætti snemma og sæki guttann og svo brunum við í sveitina :)
við áttum góða rólega helgi, héldum upp á afmælið hans á föstudag, Dóa kíkti á laugardag, vont veður á sunnudag, skreyttum tréð og vorum barad inni. Hann var eitthvað pirraður í eyranu svo ég hélt honum heima á mánudag en það varð ekkert úr veikindum hjá honum svo hann fór hress í skólann í gær.
við erum bæði svo spennt að komast upp í sveit, skreyta jólatréð og bíða eftir jólunum :o)
föstudagur, desember 18, 2009
6 dagar til jóla
og smá afmælisveisla í dag.
Við fórum í jólaklippingu í gær – ég stytti aðeins meira á hausnum á mér og sonur fékk fjólubláan hanakamb, veit ekki hvort okkar er montnara yfir hanakambinum…
fimmtudagur, desember 17, 2009
7 dagar til jóla …
búin að skreyta nema jólatréð- það fer ekki upp fyrr en eftir afmælisveislu Gabríels. Ég skreyti ekki mikið – mér finnst svo leiðinlegt að unskreyta, svo seríur, dúkar og jólastyttur hér og þar og íbúðin er obbosslega kósí :o)
Kakan bökuð, verður skreytt í dag eftir klippingar.. já við erum að fara bæði í klippingu og hann bað um grænan hanakamb…. ??
þriðjudagur, desember 15, 2009
mánudagur, desember 07, 2009
Jólahlaðborð og Frostrósir
já annasöm helgi. Fór út að borða með vinnunni á föstudag; jólahlaðborð á LaVita Bella (Bautinn) og það var bara snilldin ein. Maturinn góður og þjónustan framúrskarandi.
Fór svo á djammið með snillingunum; Eygló, Freydísi og Elísu. Við sungum, drukkum dönsuðum fram undir morgun – hrikalega gaman !
Fór upp í sveit eftir hádegi á laugardag, enda var sonur þar í góðu yfirlæti :o) Fórum og horfðum á jólasveinana fara í jólabaðið sitt í Lóninu. Gabríel f´ro ofaní með Þórhöllu og þeim og það var rosalega gaman að horfa á! Tók fullt af myndum sem koma á netið um leið og tækifæri gefst. Mamma og pabbi voru á leið á sitt jólahlaðborð í Selinu ásamt Þórhöllu systur og Lárusi. Hjörtur ætlaði að vera hjá okkur Gabríel og við þrjú áttum bara virkilega notalegt kvöld saman:o)
Sunnudagur var fullskipulagður og ekki mínúta til að slappa af; 07:00 vaknað, 08:00 lagt af stað í bæinn; Fótbolti kl 10 (æfing hjá GAH), subway í hádeginu, jólahúsið þar á eftir, Ketilshús kl 14(barnaskemmtun), afmæli kl 15(10 ára dóttir vinkonu minnar – góðar kökur), hittum ÞV og mömmu kl 16 (á Glerártorgi) og jólahús aftur kl 17, keila kl 18 og borða kl 18:30 og Frostrósir kl 19:30…
Tónleikarnir voru hreint snilld. gæsahúð á nýju levelli hjá mér og ég sat með þá gæsahúð allann tímann.. og já tárinn komu reglulega í krókana. Að sjá þessar dívur syngja er bara snilld, og ekki skemma Jóhann og Garðar Thor Cortes fyrir… Jafnvel Friðrik skoraði nokkur stig hjá mér líka… hann ætti bara að slaufa þessu Jógvan dæmi og fara að gera eitthvað almennilegt eins og þetta !
miðvikudagur, nóvember 25, 2009
Fallegur dagur
á Akureyri er slabb, rigning, slydda, dimmt og já frekar hráslagarlegt úti.
Við sonur vorum á leið í leikskólann, rúðuþurrkur á milljón, og slabbið gusaðist út um allt í kringum okkur.
þá heyrist úr aftursætinu “mamma í dag er fallegur dagur úti!”
- já svona er sonur minn alltaf jafn hamingjusamur og sér fallegu hlutina í öllu :o)
föstudagur, nóvember 20, 2009
föstudagur og kaffið komið í blóðið
vikan fljót að líða.
Fór í klippingu á föstudaginn og vá vá – það er geggjað ! Hann vissi alveg hvað ég var að leita eftir. Ég er semst með stutt hár – alveg stutt!
Fór á We Will Rock You sýningu VMA. Ágæt, gaman að sjá hana, nokkrir góðir söngvarar. Flottir búningar :o) Fór með Elísu vinkonu og við skelltum okkur aðeins á trúbbakvöld á Kaffi Ak eftir sýningu, en vorum svo bara rólegar og fórum snemma heim.
Þetta var semst róleg og notaleg helgi.
fer upp í sveit í dag. Gabríel er búin að hlakka svo til´. Sönglaði út í bíl í morgun “fer til afa og ömmu í dag” Voða kátur. Hraustur og hress.
Ég fór í flensusprautu, við svínó, og mér líður bara vel. Pantaði tíma handa Gabríel líka.
Hlakka til jóla. 34 dagar til jóla. Hlakka til að fá Dóu heim, hlakka til að fá kannski að sjá framan í Röggu í næstu viku, og fá að hitta litla gullmolann hennar hana Svövu. En þær mæðgur eru að koma í viku heimsókn á skerið. Vona bara svo innilega að þær nái að kíkja norður.
Mig reyndar langar líka agalega suður. …..
fimmtudagur, nóvember 12, 2009
Lífið er gott
já þessa dagana er lífið bara gott. Við sonur erum bæði hraust og kát. Var spurð að því um daginn “hvernig er það – veikist sonur þinn aldrei??” ég fór þá og flétti upp á blogginu hans og fyrir utan hlaupabólu í janúar og fótbrot í febrúar þá hefur hann ekki fengið pest síðan í desember – akkúrat dagana sem ég var í starfsviðtali vegna Orkusölunnar :o) – svo með sanni má segja að sonur minn sé þokkalega hraustur. Þrátt fyrir nokkrar hornasir og hósta stundum þá er hann aldrei lasinn með hita og slen.
Súbbinn okkar þurfti smá viðgerð hjá pabba um helgina. Þar sem pabbi minn er einn duglegasti maður sem ég þekki þá var hann ekkert að bíða með þetta og súbbinn var klár á þriðjudag :o) – og aldrei betri ! Takk elsku pabbi minn :o)
og Inspiron lappinn minn fór í viðgerð á mánudaginn 2 nóv, vegna móðurborðsins, eina ferðina enn… Og þessar elskur í EJS skiptu henni út fyrir mig, er núna með litla xps 1330 vél - sem er algjör draumur í dós !
Ég er nokkuð orðin klár á jólagjöfum og er jafnvel að spá í að klára dæmið bara um helgina – væri það nú ekki dásamtlegt að vera búin með jólagjafakaupin um miðjan nóvember…??
- já og btw – fer í klippingu á föstudag –stutttttt !!!!
Knús á línuna !
mánudagur, nóvember 09, 2009
átti snilldar helgi
Sonur kátur á fótboltaæfingu. Við áttum góða helgi í sveitinni. Róleg og notaleg. Var jú tölvulaus, en ég var með Lisbeth Salander í staðin.
Áttum svo notalegan sunnudag saman við mæðgin.
miðvikudagur, nóvember 04, 2009
miðvikudagur…
hafið þið tekið eftir því að það er alltaf miðvikudagur ? mér finnst alltaf vera miðvikudagur. Íris vinkona benti mér á þetta eitt sinn í EJS og hún hafði rétt fyrir sér – maður tekur eftir miðvikudögunum.
Hjónaball var bara snilldin ein. Maturinn virkilega gómsætur, enda var ekki við öðru að búast þegar Hermann var í nefnd. Skemmtiatriði fín, ekki of mörg svo maður náði að spjalla og hlæja með borðfélögum sínum og taka fyndar myndir – sem eru enn undir ritskoðun :o)
Ég er bara kát. 50 dagar til jóla. Sonur kátur. Ætlum í sveitina næstu helgi. Vona að lappinn minn verði kominn úr viðgerð þá… Honum datt í hug að hætta bara að virka á sunnudagseftirmiddegi – búin að vera þægur og fínn í háhraðanetinu í Fellshlíð.
föstudagur, október 30, 2009
þjónn í súpunni og hjónaball
jamm fór á þjónn í súpunni á Friðrik V á miðvikudag í boði starfsmannafélagsins og bauð Önnu minni með! Var mikið hlegið ! þetta er snilldar verk hjá þeim !
Svo um helgina er hjónaballið í Reykjadal – já maður þarf víst ekki að vera hjón til að fá að djamma með reykdælum. Hlakka mikið til !
knús til ykkar og góða helgi !!
fimmtudagur, október 29, 2009
ný gleraugu !
já þar kom að því að ég lét til leiðast eftir nokkra vikna stanslausan hausverk. Ég kíkti til sjóntækjafræðings sem mældi augun mín og gleraugun og hristi svo bara hausinn og sagðist skilja vel að ég væri með hausverk og horn út um gagnaugun. Þessi horn er Anna mín búin samviskusamlega nudda og hjálpa mér, og já skipa mér að fara til augnlæknis eða sjóntækjafræðings. En auðvitað þegar maður er ekki alveg að drepast þá lætur maður þetta liggja á milli hluta.
Eníveis. ég er víst með sjónskekkju og búin að vera með lengi. Svo ég kaupin ný gleraugu með aðstoð pabba og vá – dagur 3 núna án hausverks! þetta er snilld. Er enn samt með smá seiðing, en fróðar konur segja að það taki alltaf smá tíma að venjast nýjum gleraugum. En hornin eru að fara :o)
mánudagur, október 26, 2009
Dale Carnegie
ég er enn að jafna mig eftir snilldar námskeið sem ég var á um helgina. 3 dagar í brjálaðri keyrslu. Búin á því…
Er alveg við það að hætta að vinna í dag og fara að sækja son minn sem ég hef ekki séð síðan á föstudag. Hlakka svo mikið til að fá mömmu knúsið mitt.
Og og og loksins lét ég verða að því að panta tíma hjá sjóntækjafræðing. Vona að hann segji bara við mig “Guðrún þú þarft að fá þér ný gleraugu…!
og ég mun ekki hugsa um pening heldur hlýða og segja “já”
á döfinni er svo út að borða á miðvikudag með Önnu minni, fara á “þjónn í súpunni” yndislega frænka mín Sylvía og hennar spúsa Áslaug ætla að passa soninn fyrir mig :o)
og ég var að skrá mig og Þórhöllu systur á Frostrósatónleika 6. desember – í boði starfsmannafélagsins ! það verður alveg hreint yndislegt! Mikið hlakka ég til að fara á tónleikana með yndislegu systur minni !
knús yfir til ykkar allra
miðvikudagur, október 21, 2009
Foreldrakaffi í skólanum
hvað er betra að byrja daginn á en að fara og borða morgunmat með syninum í skólanum hans, kubba svo og pússla… ?? maður er alveg endurnærður á sálinni eftir svona skemmtilegar stundir !
Hringdi í pabba hans í gær og bauð honum með en hann er svo duglegur í skólanum að hann komst ekki. Kemst vonandi bara næst, það myndi skipta Gabríel svo miklu að hafa okkur bæði með sér :o)
mánudagur, október 19, 2009
Bara róleg.
átti góða rólega helgi með syninum. Hittumst í bíói, við Freydís með krakkana og svo hittum við Elísu á kaffihúsi á eftir. Afskaplega notalegt eitthvað. bakaði pizzu, horfði á videó, kubbaði, fór á fótboltaæfingu með tvo 4ára, átak. Straujaði lappann, hann var held ég stútfullur af vírusum, allavega er hann miklu sprækari núna. Skúraði, eldaði hangikjöt.
Vídeókvöldið okkar var yndislegt. Eftir að við snæddum gómsæta heimatilbúna pizzu – sem sonur hjálpaði mér með, sátum við með popp og kók og horfðum á Leiftur McQueen Disney myndina, hún er alveg uppáhalds ennþá hjá mínum manni. Svo þegar þessi elska er að fara að sofa – knúsar hann mig og þakkar mér fyrir vídeókvöldið, mamman þessi fékk smá tár í augun…
jámm bara svona sitt líti af hverju á annars afskaplega afslappaðri, rólegri notalegri helgi :o)
föstudagur, október 16, 2009
Alveg að koma helgarfrí..
og er að keyra á síðustu vinnuorkunni sem ég á. Hlakka til að sækja soninn sem er örugglega í sjöunda himni eftir daginn því hann átti von á slökkviliðinu í heimsókn í dag.
Við sonur ætlum að baka pizzu í kvöld og hafa vídeókvöld. Þá má hann vaka aðeins lengur. Svo langt síðan við höfum átt svona quality stund bara við tvö. Við erum svo oft á þeyting um allt. Sem er gaman líka ! Alltaf nóg að gera hjá okkur !
Á morgun er planið að fara í bíó, og fara með Freydísi go Júlíusi líka – og vonandi kemur Elísa vinkona með líka. Alltaf gaman í í bíó !
ég bara hlakka til helgarinnar… vona að þið eigið góða daga líka !
mánudagur, október 12, 2009
Nóg að gera samt ekkert að frétta
bara svona ekta tíminn líður áfram – reyndar allt of hratt. Allt of dimmt á morgnana, kalt, blautt.
Jólin handan við hornið. Kominn tími á að ath með hvað maður á að gefa hverjum í jólagjöf og finna úr því hvar maður finnur pening fyrir hverri jólagjöf fyrir sig. En það reddast eins og öll hin jólin.
Síðan síðast er nóg búið að gerast. Hélt upp á 30 afmæli vinkonu minnar – hrikalega gaman. Átti langa helgi með syninum helgina á eftir, afskaplega notalegt ! Helgina þar á eftir voru tónleikar með ljótum hálfvitum og endaði óvart á djamminu sem var hrikalega gaman. Sömu helgi fór ég að sjá myndina Stúlkan sem lék sér að eldinum, og endaði á djammi það kvöld líka, aftur hrikalega gaman ! Núna um helgina átti ég yndislega helgi með syni mínum og foreldrum í sveitinni.
jámm svo eru það hinir dagarnir – þessir virku – sem eru bara ánægjulegir, ekker bögg, ekkert vesen. Nóg að gera !
knús
mánudagur, september 14, 2009
Dúndurfréttir og sjóstöng
þessi helgi var hreint yndisleg í alla staði. Byrjaði á því að fara og hitta Önnu á Pinnanum og þar komu mamma og pabbi og tóku guttann minn með sér heim í sveitina. Anna gisti hjá mér og við skelltum okkur á Dúndurfréttir á þeim Græna ásamt Toddu, og auðvitað klikkuðu þeir ekki. Þetta átti að vera Zeppelin kvöld en þeir stálust til að taka þessi þrjú sem maður eiginlega kemur til að heyra; July Morning, Comfortably Numb og Child in Time. Og alltaf fær maður jafn mikla gæsahúð við að heyra þetta.
Á laugardag var svo farið á sjóstöng í boði Rarik/Orkusölunnar. Hermann mætti með okkur Önnu og það var snilldar gaman! Mikið veitt og mikið hlegið ! Anna fór á kostum við veiðarnar og sló öll met þegar hún veiddi á 3 öngla á meðan hún var að slaka línunni niður ! Dagurinn hefði ekki getað farið betur og veðrið var snilldin ein.
Og svo tók minn yndislegasti sonur á móti mér þegar ég kom uppeftir seinnipart laugardags. Og átti þar góðan rólegan sólarhring hjá pabba og mömmu; slappaði af, prjónaði og knúsaði drenginn minn.
Myndir frá sjóstöng eru hérna í slideshow formi: Sjóstöng.
í normal formi ef tenging er hæg: Sjóstöng
mánudagur, september 07, 2009
Bústaðarhelgi
það var alveg yndislegt í bústaðnum. Þvílíkt hress hópur þarna á ferð ! Mikið hlegið og mikið skrafað og vel borðað af þvílíkt heilsusamlegum mat. Og lærdómsríkt í matargerð. Jafnvel lærdómsríkt í prjónaskap, en meira að segja ég er að spukulera að fjárfesta í prjón og spotta og byrja að prófa :) – gæti bara verið gaman að prufa að prjóna einn trefil og ath hvort ég flæki mig nokkuð svo mikið í honum he he he !
Potturinn var snilld og tímaskynið ekki neitt. Að vakna og fara beint út í pott og vakna betur þar gerist ekki betra !
Kom heim með flugi í gær. Afslöppuð og alsæl með ferðina. Var sofnuð um ellefu :)
Nokkrar myndir komnar inn á flikkrið : Saumóbústaður
fimmtudagur, september 03, 2009
Linkin Park ft Chris Cornell - Crawling/HHH
Er gjörsamlega að missa mig yfir þessu lagi.. Þeir eru svo flottir saman á sviði...
miðvikudagur, september 02, 2009
Snjór í fjalli
blendnar tilfinningar við að sjá snjóinn. Mér finnst oft gaman þegar veturinn er að koma og nýr snjór kemur. Þá er líka stutt í jólin, jólabarnið ég.
Veturinn mætti bara vera styttri..
mánudagur, ágúst 31, 2009
loks á meðal lifenda..
úff þetta er eitthvað sem ég vil ekki fá á næstunni aftur en þvílíka ógeðispest sem þetta var. Lá rúmliggjandi alla sl viku! Heppin að eiga góða að en þær elskulegu Sylvía og Áslaug hjálpuðu mér með að sækja og sendast með Gabríel. Ég get með sanni sagt að á föstudag var ég komin með ógéð á rúminu mínu. Reyndar svo eftir að koma heim í gær – búin á því eftir réttir þá var rúmið mitt best í heimi !
En helgin var góð. Á föstudag fann ég orku til að keyra í sveitina. Skólinn hans Gabríels var lokaður vegna starfsdags svo við fórum bara snemma. Fínt því mér leið alltaf best nývaknaðri. Og ég fór ekkert úr húsi fyrr en á sunnudag (nema með nammidagsferð í búðina á laugardag auðvitað)
Réttir gengu vel, gott fólk að draga með okkur. Gaman að hitta þær mæðgur Snjólaugu, Sunnefu og Eik :o) Sylvía og Áslaug voru eins og færibönd með kindurnar enda gekk þetta vel hjá okkur :o)
Fór svo í bíó með soninn í gær og við sáum myndina Upp en hún féll ekki alveg í kramið hjá þeim stutta. Hann skildi hana ekki og var orðinn pirraður í lokin. Kannski bara þreyta líka – langur dagur. Honum fannst gott að koma heim blessuðum :o)
Réttarmyndir á flikkrinu : Reykjahliðarréttir
mánudagur, ágúst 17, 2009
smá sól !
þegar við vorum að fara út í bíl í morgun þá upplifði ég smá haust í loftinu… svona fyrsti morguninn sem ég finn fyrir þessu. Semst sumarið er búið…
Átti snilldar helgi. Rima vinkona kom í heimsókn í mývó á laugardag með börnin sín tvö. Ég hafði td aldrei hitt litlu prinsessuna hennar hana Unnu Dís. Þvílíka skvísan sú litla. Og Hartmann orðinn svo stór og flottur ! Við Rima þurftum mikið að tala og sem betur fer þá náðu guttarnir okkar vel saman og gátu leikið sér.
Ég er svo stolt af henni Rimu. Hún er svo dugleg og ég vona að allt gangi upp hjá henni, því ef einhver á það skilið þá er það hún ! Það er margt sem við höfum gengið í gegnum. Og það er alltaf spurningin um hvernig við vinnum úr þeim hlutum, aðstæðum og tækifærum sem við fáum uppí hendurnarnar. Ég er td afar ánægð með hvernig hlutirnir þróuðust hjá mér og er ánægð og sátt með hvernig lífið er í dag. Er á minni hornhillu og bíð eftir fyrsta tækifæri að taka stökkið :o) - þá er það efnahagsástandið sem stoppar helling.. en það er bara að brosa og þakka fyrir það sem maður hefur :o) og ég hef það gott !
knús
fimmtudagur, ágúst 13, 2009
og jólin nálgast :o)
sumarið er búið, já ég er ekkert að fegra hlutina. Það kom sumar í 3 vikur, heppin ég – það voru akkúrat þessar 3 vikur sem ég var í sumarfríi. En síðan ég kom úr fríi er búið að vera rigning og súld hérna á Akureyri. Mér er löngu hætt að finnast þetta sniðugt.
Annars er bara gott að frétta af okkur mæðginum. Lífið er komið í fastar skorður og jafnvel maður segi “sem betur fer”. Eins og ég elska frí, sumarfrí, dútl og leti; þá á ég það til að verða þreytt í rótleysi og rútínuleysi. Sonur er líka kominn á sitt ról; dettur út af 20:11 nákvæmlega on the dot, og springur úr rúminu 06:56 á morgnana..
Og núna getur maður bara farið að huga að jólagjöfum, kortagerð (haha einmitt) og afmælisveislu. Ég er sko byrjuð að huga að afmæli sonarins, ætla að halda honum alvöru barnaafmæli helgina fyrir jól :O) – já hver hefði trúað því fyrir ca 10 árum að ég ætti eftir að halda barnaafmæli… með dúkum, glösum, kertum, kökum (sem ég auðvitað baka sjálf – er miklu duglegri þar en í kortagerð) pökkum og söng… kaffi fyrir foreldra (aðallega mæðurnar sem við hittumst alltaf í veislum barna okkar – engin samskipti utan þeirra ha ha )
Ég er alveg hrikalega ligeglad þessa dagana. Er bara ekkert að stressa mig á hlutunum, og þarf ekki einu sinni á Polly að halda lengur. Hlutir eru svona status quo, sonur hraustur, vinnan skemmtileg, peningar duga, súbbi gengur, og ég kát :o)
þriðjudagur, ágúst 04, 2009
Allir að kjósa Halldóru
Halldóra litla frænka mín er að læra skóhönnun og er að gera virkilega flotta hluti. Núna þarf hún okkar aðstoð með að kjósa hana áfram í verkefni VivaLaDiva sem gæti komið henni talsvert áfram á braut tækifæranna !
hún er þegar komin í 10 manna úrslit og þarf núna að fá aðstoð okkar. Endilega smellið á slóðina : http://www.vivaladiva.com/shop/page?pageId=3027&cm_sp=vldfreeformat-_-Cordwainers-_-Halldora
og svo kjósa !!!
mánudagur, júlí 27, 2009
bloggleti…
já allt of mikil bloggleti í mér þessa dagana. Meira að segja bara tölvuleti. Ég kem úr vinnunni og ég td sleppi alveg WoW þessa dagana. Er meira með bókina á nefinu, alveg dottin ofaní lestur.
En sl vika var fín. Sonur var heldur þreyttur þar sem það tekur á að byrja aftur í skólanum. En gekk vél. Vikan var heldur tíðindalaus. þannig engar fréttir góðar fréttir. Er bara ekkert að gúddera þetta veður. Mér finnst bara ekkert í lagi að 3 vikur séu það eina sem við fáum af sumarveðri. Ég var heppin að vera í fríi akkúrat þá.
Við fórum í Fellshlíð á föstudag. Loksins fékk sonur að fara í Fellshlíð. Harpan var þar líka go var afskaplega gott að sjá hana. Svo langt síðan ég hef fengið Hörpuknús ! Svo við áttum gott kvöld; mikið talað og mikið hlegið!
Sonur fékk svo að fara á Hálfvitatónleika á laugardagskvöld. Hann skemmti sér vel blessaður; fannst þetta allt afar spennó – vaka lengur, tralla og horfa á fólkið og fá að borða úti fisk og franskar :o) Við Anna skemmtum okkur vel líka !
Ég er alveg andlaus…. (enda mánudagur)
mánudagur, júlí 20, 2009
Nikulásarmót
Sonur minn kominn heim. Mér leið afskaplega vel þegar ég var að fara að sofa í gær; allt eins og það á að vera ! Það síðasta sem ég geri áður en ég fer sjálf að sofa er að fara inn til hans og breiða betur yfir hann, ath hvort allt sé ekki örugglega allt í lagi og jafnvel taka dót sem tekur upp allt plássið í rúminu hans :o)
Við fórum á Nikulásarmótið á Ólafsfirði. Rosalega gaman ! Vorum í tjaldbúðum Mývetninga og horfðum á fótbolta. Gabríel var áhugasamur á laugardeginum en var heldur þreyttari á sunnudeginum :o) Þetta var mjög gaman og Hjörtur Smári og liðið hans urðu í 2. sæti í hans flokki! Rosalega duglegir krakkar þarna á ferð!
Afskaplega gott að koma heim í gær. Gabríel var fljótur að tæta til allt dótið sitt og leika sér með allt. Ég meira að segja fann fyrir smá spennufalli; sumarfrí búið, allt að komast í fastar skorður aftur. Mér finnst ég gæti sofið í heila öld samt. Skrýtið. Það eru kannski bara eftirstöðvar að hafa sofið í tjaldi um helgina. Hvíldist ekkert of vel. Kannski ég fari bara fyrr að sofa í kvöld. Sonurinn fékk spennufall í gær klárlega. Hann var ekkert búinn að vera heima í tvær vikur og var kominn með söknuð í dótið sitt. Þegar hann var búinn að ath hvert einasta dót í herberginu þá spyr hann um hálf átta : “mamma má ég fara að sofa núna” og við burstum og ég les hálfa bók (disney sögustund) og hann er sofnaður klukkan átta. Alveg búinn.
Búin að setja inn myndir á flikkrið okkar: Nikulásarmót Ólafsfirði 18-19 júlí
föstudagur, júlí 17, 2009
Fyrsta vinnuvika eftir frí
er liðin :) eða næstum því – á klukkutíma og tuttugu mínútur eftir. Búin að vera ein heima þessa vikuna. Og bara búin að vinna, lesa, sofa og horfa á Chuck þegar allt annað bregst. Sems búin að slappa 150% af!! Ekkert kvöld né næturbrölt á minni !
Fór á Harry Potter í gær með Þórhöllu systur og Hirti Smára. Mikið var ég ánægð með myndina – fannst hún snilld. Bæði hló og táraðist.
Núna er bíllinn kjaftfullur af dóti því við ætlum í útilegu á morgun. Fer uppí sveit núna og gisti þar. Svo förum við sonur á Ólafsfjörð í útilegu ! hlakka mikið til !
Eigið góða helgi.
mánudagur, júlí 13, 2009
fyrsti dagur í vinnu
jámm og ég er ekki frá því að ég hafi verið svolítið mygluð í morgun (og kannski er reyndar smá enn). En auðvitað er maður kátur í dag! ég er svo ánægð með þessar 3 vikur sem ég fékk í frí. Endurnærð og úthvld að ég get ekki nöldrað yfir að fríið sé búið. Fékk mikið af sól, og mikið af hita. Las mikið og fór oft í sund með syninum, sparkaði bolta með honum og rúntuðuðm. Reyndi að vera eins mikið og ég gat úti við. Sólarvörnin notuð mikið :o)
Strákurinn minn er núna hjá afa sínum og ömmu í sveitinni. Við fórum þangað á laugardaginn. Hann var hjá pabba sínum sl viku og ég fékk nokkra daga útaf fyrir mig. þar á meðal fór ég í algjöra aflsöppun í Fellshlíð. Naut svo veðurblíðunnar hérna heima á Ak.
föstudagur, júlí 03, 2009
Sumarfrí !
hæ hæ
Viuð erum búin að vera í fríi ! afskaplega gaman hjá okkur. 2 vikur búnar af 3 hjá mér. Núna í dag fer sonur svo til pabba síns í viku. Planið er að fara í Fellshlið, sveitina og sitt hvað í vikunni, bara gera ekki neitt. En við erum allavega búin að hafa það afskaplega gott !!
Ég er ný búin að setja inn myndir:
Myndir teknar héðan og þaðan í sumarfríinu : Sumar 2009
Ásbyrgi í útilegu 21-22 júní: Ásbyrgi
Og svo fórum við í fjölskylduferð til Presthóla. Fórum í fjöruferð, skoðuðum þar sem Músakot hafði staðið og kíktum á Jónas afabróður minn í kaffi : Presthólaferð
Fórum á rúnt í nærliggjandi sveitir. Kíktum í Laxárdal, ég hafði aldrei komið í kirkjugarðinn þar. Fórum á Grenjaðarstað og skoðuðum safnið þar. Einnig fórum við í Hvalasafnið á Húsavík. Menningarferð.
Svo komum við heim í gær. Anna kom í heimsókn og við fórum á Ísöldina 3. Við Gabríel bökuðum vöfflur handa okkur – varla að ég næði að baka nógu hratt því Gabríel settist að með diskinn sinn og mjólkina við vöfflujárnið og borðaði jafn óðum og þær komu – mikið agalega eru vöfflur góðar!!
fimmtudagur, júní 18, 2009
Sumarfrí
ég er algjörlega andlaus og komin í sumarfrí í huganum. Sakna Gabríels. Er samt búin að eiga góða viku. Kaffihús og dekur.
Byrja í fríi á morgun eftir vinnu. Sæki son minn þegar búin að vinna. Áætlað er að fara og horfa á bílaspyrnuna á laugardaginn. Og svo jafnvel í sveitina þá um kvöldið. Mig langar afskaplega í útilegu á sunnudag í Ásbyrgi eða Hljóðakletta. Og ef veður helst sem spáð er þá ætla ég að drífa mig.
Fellshlíð svo til Önnu og Hermanns. Gabríel er farinn að tala mikið um að fara þangað. Hann veit að ég er búin að vera svolítið þar núna og hann er held ég barasta abbó :o) svo ég get ekki annað en farið með hann.
Ætli maður haldi svo ekki í sveitina eftir það. Á bara 3 vikur og þær verða nú fljótar að líða.
Átti alveg frábæra helgi síðast. Hittumst vinkonurnar í Fellshlíð. Mikið spjallað og hlegið. Góðir tónleikar á laugardagskvöldinu með Hálfvitunum. Og svo pjúra leti á sunnudag. Var í náttfötunum allan daginn og skammast mín ekkert fyrir það :o)
fimmtudagur, júní 11, 2009
á morgun!!
á morgun er dagurinn sem ég og 2 aðrar erum búnar að bíða eftir í þónokkurn langan tíma. En á morgun þá hittumst við vinkonurnar og ætlum að gera okkur glaðan dag ! Mikið hlakka ég til að knúsa Amsterdambúann og Fellshlíðarfrúna.
þessi vika er búin að vera skemmtileg, en hrikalega löng að líða. kvíði líka morgundeginum því á morgun fer sonur minn til pabba síns og verður hjá honum í viku. Mér finnst þetta svo langur tími. En óskaplega held ég að við höfum gott af þessu. Og hann á eftir að skemmta sér vel.
Við erum búin að fara 2x í Kjarnaskóg í vikunni. Á þriðjudag þá endaði hann heldur mikið í læknum svo við fórum fljótlega heim. Í gær þá fórum við í góða veðrinu í sund á Þelamörk og skemmtum okkur vel. Splæstum á okkur hammara á eftir :)
vorum bæði heldur sybbin í morgun. Finn alveg að hann er farinn að þurfa að komast í frí. Honum finnst alltaf skemmtilegt í skólanum, en hann er orðinn þreyttur þessi elska. Mikið hlakka ég til að komast sjálf í frí og njóta daganna með syni mínum :o)
En fyrst er það þessi frábæra helgi sem er framundan !
þriðjudagur, júní 09, 2009
ZZzzzzz……
af hverju asnast ég ekki í rúmið á skikkanlegum tíma..?? kannski næ ég að fara fyrr að sofa í dag – er búin með alla Castle þættina mína. Og núna hlusta ég á Ljótu Hálfvitana, sem eru btw titlaðir sem barnatónlist hjá Skífunni.. ha ha – reyndar syngur sonur með hástöfum mér reyndar finnst heldur skrýtið að heyra hann syngja suma textana …. hehe en margir hverjir textana eru nú ekki þeir barnvænustu.. En maður kemst alltaf í gott skap við að hlusta á þessar elskur.
fórum í Kjarna í gær. Með jarðaber og kókómjólk. Sonur alveg grútskítugur á eftir og hamingjusamaur. Er vopnuð teppi og bók fyrir daginn í dag. Leiðin liggur út í skóg aftur eftir vinnu :o)
Dóan mín komin til Dalvíkur. Gott að vita af henni þarna handan við hæðina :o) og stutt símtal í burtu.
mánudagur, júní 08, 2009
rigning.. á mánudegi..??
Dóan mín er komin til landsins. Mikið var gott að heyra í henni bara hinum megin á landinu en ekki með allt Atlantshafið á milli okkar ! og hún kemur norður í kvöld !
Við kellur ætlum að hittast á föstudaginn í Fellshlíð. Mæting á Snyrtipinnann klukkan 17:00 á föstudag. Annan okkar ætlar að gera okkur sætari en við erum – erfitt, við erum svo sætar - en kannski gerlegt..? Anna er náttla svoddan snillingur !! Mun hætta kl 15:00 til að vera örugg um að ná tímanlega :o)
Helgin var ljómandi. Hitti Fellshíðarhjónin á föstudag. Annan átti afmæli og áttum við góða stund með góðum mat um kvöldið. Vöfflur í kvöldkaffi. Gisti samt ekki, mamman í mér gat ekki sleppt því að vakna með drengnum um morgunin í sveitinni. Finnst hann bara aldrei heima þessa dagana. Eftirstöðvar vegna langar helgar. Og svo fer hann í viku á föstudaginn…
Það er bara gaman að vera til :o)
föstudagur, júní 05, 2009
Til hamingju með afmælin !!!
í gær átti mín yndislega vinkona Ragga afmæli ! Sendi stórt knús til þín mín kæra út til Rotterdam. Fergal og Svava mega fá smá af því líka !! knús knús – vonandi áttirðu góðan dag og var dekrað við þig allan daginn !!
Í dag á Anna mín afmæli! Til hamingju með daginn elsku vinkona !! hlakka til að sjá þig í dag og knúsa þig !!!
Til hamingju með afmælin ykkar elsku Ragga og Anna !!
Annars er helgin framundan. Margt planað og mikið að gera. Erum að fara í sveitina við Gabríel. Ætlum að taka tjaldið með og æfa okkur í að tjalda því. Annars erum við klár í útilegur. Planið er að hafa þetta bara reddí í bílnum þá er hægt að fara í útilegu hvenær sem er þegar veður er gott :o)
Sonur er alltaf jafn kátur !
þriðjudagur, júní 02, 2009
sól sól skín á mig…
gott og gaman að vakna á svona dögum. Eina var að sonur minn var ekki heima. Hef ekki séð hann síðan á föstudag í hádeginu. Mikið held ég að hann hafi skemmt sér vel blessaður um helgina. Það var grill í skólanum hans á föstudaginn og mættum við bæði með honum foreldrarnir. Mér finnst skipta máli að hann hafi okkur bæði saman hjá sér. Enda átti ég hamingjusamasta dreng í skólanum og þó víða væri leitað. Og ekki skemmdi það fyrir að pabbi hans gat tekið hann með sér úr skólanum í hádeginu. Ég held að það séu allt of mörg börn sem lenda í því að hafa foreldra sína aldrei saman með sér. Sum börn sjá foreldra sína aldrei talast við einu sinni. Sem mér finnst vera sorglegt. Þetta er þeim svo mikilvægt, sá það alveg á mínum syni hve mikið hann naut þess að hafa okkur bæði hjá sér.
Allavega var helgin alveg afksaplega notaleg. Var bara róleg á föstudagskvöldið. Fór í gott partý á laugardag og út að dansa í kjölfarið, heldur rykug er ég vaknaði á sunnudag.
Grillveisla í Mývatnssveit í foreldrahúsum. Þar vorum við samankomin; mamma og pabbi, Þórhalla systir og allri fylgifiskar og afi og amma. Afskaplega notalegt að fá okkur að borða saman og spjalla.
Mánudagur bjartur og fagur og latur. Gerði ekki handtak. Spilaði WoW og söng með góðri tónlist.
Og þessi yndislega helgi endaði með góðri bíómynd með Önnu. Fórum að sjá Angels and Demons og hún skemmir sko ekki bókina. Ég naut myndarinnar og fannst hún vel þess virði að sjá hana í bíó. Á eftir fengum við okkur að borða á Greifanum ásamt Hermanni en hann kom ekki með okkur í bíó.
Og núna skín sólin, hlakka til að sækja soninn klukkan 4 í dag og fá mömmuknúsið mitt.
Eigið góðan dag :o)
miðvikudagur, maí 27, 2009
Sumarfrí
jámm það nálgast fríið. Eftir vinnu 19 júni þá hefst fríið… og hvað ég ætla að gera er alveg óvitað. Sonur fer á undan í frí- hann fer til föður síns 12 júni þannig ég verð ein heima síðustu viku fyrir frí.
Útilegur eru held ég málið núna í sumar. Á nýtt tjald og skottstóran bíl. Hlakka mikið til að fara með syninum í útilegu. Þarf ekki að fara langt (spara bensín) samveran, útiveran skiptir máli :o)
Anna vinkona var að kaupa sér far til Amsterdam til Dóunnar okkar. Þær ætla að skella sér á U2 tónleika. Gott hjá þeim. Vonandi skemmta þær sér vel elskurnar. Mig langar auðvitað – en það mælir allt á móti- verð miðans, verð flugsins og svo aðal atriðið – dagsetningin. Tónleikarnir eru akkúrat þegar ég er að koma úr fríi…
Flugið til Amsterdam kostar helmingi meira en í fyrra. Annars hefði ég verið búina ð kaupa mér miða sjálf út. 74 þúsund kostar fram og til baka núna – á meðan ég í fyrra borgaði 36 þúsund!!! Mér finnst þetta hrikalegt!
Ég er að sannfæra sjálfa mig að ég geti alveg slappað af á landinu eitt árið. Búin að ferðast svo vel sl ár. – Spánn 2000 - London 2004, Budapest 2007, Amsterdam 2008. Kannski ekki margar ferðir en allar alveg snilld. Ég get alveg slappað af eitt ár !! tala nú ekki um þegar fjandans evran og pundið kosta dauða og djöful!
svo ég get þetta alveg núna !!!
þriðjudagur, maí 26, 2009
Seinheppin …
mánudagur, maí 25, 2009
kalt í dag
mér er kalt. Með stíbblaðan nebba.
Aftur kominn mánudagur. Tjaldið mitt kom á föstudaginn – hrikalega ánægð ég með þetta – en gat svo ekki tjaldað því um helgina því einhvern veginn þá gleymdi sumarið að fara til Mývatnssveitar.
En við sonur áttum frábæra viku með flugsafnsferð og snilldar helgi í sveitinni. Búin að skrifa fullt á síðu sonarins. Myndir komnar inn.
Voða andlaus í dag. Kaldur mánudagur.
þriðjudagur, maí 19, 2009
Tjaldkaup
jahá… fyrir nokkrum árum þá heyrðist reglulega sagt “ég hata að sofa í tjaldi, þoli ekki að vakna einhverstaðar, í spreng að míga og komast ekki í sturtu strax “
Núna er sko öldin önnur (já sennilega var þetta sagt fyrir aldamót… nei ég skrökva því, ég sagði þetta líka fyrstu árin á þessari öld..
í dag keypti ég mér tjald! Ég byrjaði á því að fara í útilegu 2007 með Hafdísi vinkonu og hennar syni og mínum syni. Og þá skemmti ég mér konunglega og hugsaði með mér að auðvitað myndi ég nú gera þetta fyrir son minn að fara með hann í tjald. Og viti menn drengurinn dýrkaði útileguna. Að geta bara vaknað, og út að leika var eitthvað við hans hæfi!
Í fyrra þá var Hafdís upptekin við barneignir svo ekki komst hún með svo ég fór í tvær útilegur – fjölskylduútilega EJS og við Gabriél skemmtum okkur vel í henni. Svo fórum við í eina bara tvö í Ásbyrgi. Og hún er nú bara sú besta hingað til. Hann hefur ákveðnar hugmyndir. Td að nota kaffisett/matarsett töskuna sem afi hans á. - ég man eftir þessari tösku síðan ég fór lítil í útilegu!
Og ég er alveg að fíla þetta! Svo í ár þá ákvað ég að kaupa mér sjálf tjald. Svo leiðinlegt að þurfa alltaf að fá lánað. Sonur minn er löngu farinn að planleggja útilegur. Hann er búinn að tjalda út um alla íbúð með teppum og heima hjá afa sínum og ömmu út um allt hús þar líka. Honum finnst þetta svo skemmtilegt! Og það er alltaf rætt um útilegur hér og útilegur þar.
Hlakka bara mikið til að komast í útilegur með syni mínum í sumar !!!
mánudagur, maí 18, 2009
júróbuffs lesið þetta
http://www.guardian.co.uk/media/organgrinder/2009/may/16/eurovision-bbc
Eurovision blogg frá Heidi Stephens með kommentum og söng, kjóla og sitthvað fleira hehe
- er reyndar á ensku – en snilldar lesning engu að síður :)
Mánudagur…
og það er ekkert skemmtilegt veður. Kalt og drungalegt. Sólin mín stakk af suður, en kannski leyfa Reykvíkingum að fá smá sól. Ég er með rauðan/brúan nebba og freknuklasa á enninu eftir helgina.
Helgin var að sjálfsögðu alveg frábær. Átti yndislegt kvöld í Fellshlíð. Mikið borðað og drukkið. Og vegna þess hve mörg lönd gáfu okkur stig þá voru glösin alltaf á fleygiferð :)
Sakna Gabríels.. Hlakka til að hitta hann á eftir!
föstudagur, maí 15, 2009
Júróhelgi og Vikudagur
Það er föstudagur í dag og allan dag og sólin skín og einstaklega gaman að vera til í dag.
Mamma og pabbi komu áðan og buðu mér í hádegismat. Alltaf jafn notalegt að eiga smá stund með þeim.
Er farin að hlakka mikið til að hitta Önnu mína á morgun og alla sem verða þar að gleðjast saman með Eurovison sem afsökun á óhóflegu mataræði og drykkju :o)
Svo í sólinni í dag kom þessi mynd af mér í Vikudegi sem er bæjar blað Akureyrar. Nemendur Lundaskóla droppuðu hérna inn í vikunni og voru í starfskynningu – spurningin var um úrslit KA og Þórs í dag:
nota bene – ég veit varla hvað snýr fram eða aftur á fótboltavelli og skýri þar af leiðandi ekki mál mitt (ha ha ha ha ) !!
Góða helgi og góða skemmtun á Eurovision!
fimmtudagur, maí 14, 2009
Sólríkur dagur
vá hvað ég elska að byrja daginn á að sjá sólina skína inn um gluggann, sjá hitastigið á mælinum og heyra son minn segja “mamma það kemur sól inn til mín!” svaka kátur.
Að geta farið í quart buxur, hlýrabol og smá létta peysu utanyfir og berfætt í opna skó… dásamlegt.
sett í sig linsur því pottþétt þarf að notast við sólgleraugu í dag…
Sonur vandar valið á hvaða stuttermaboli hann ætli nú í – það er mikilvæg ákvörðurn þar sem hann hlakkar svo til að geta farið út bara á bolnum, engin peysa þörf. - vildi líka fara í stuttbuxum en ég náði að sannfæra hann að síðbuxur væri betri kostur þar sem meiddi á hnjám væru algeng þegar menn léku sér bara á stuttubuxunum í skólanum.
Sólardýrkandinn ég iða hérna inni á skrifstofunni og stari út um gluggana..
miðvikudagur, maí 13, 2009
Sumarfrí eftir 37 daga…
…. en hver er að telja …?
ég er ekkert búin að plana neitt í þessu fríi mínu, nema bar slappa af og fara í útilegur með syni mínum. Ég tek 3 vikur sjálf, á ekki meira – á ekki einu sinni 3 vikur. Ætla að njóta þeirra með syni mínum. hann fer auðvitað eitthvað til pabba hans, við erum eitthvað búin að reyna að möndla tímann en ekkert orðið ákveðið þannig.
Það er allavega ljóst að ekki eru peningar fyrir Hollandsferð þetta árið. Ég lét mig dreyma í fyrra að fara í ferð til US og vera viðstödd brúðkaup Jeannie sem er í September. En sé ekki frammá að það gerist heldur. Enda var sá draumur skotinn niður í október 2008 þegar allt fór fjandans til og gengið fór uppúr öllu og allt varð dýrt hérna heima. En eins og alltaf þakkar maður fyrir að eiga fyrir reikningum og eiga pening út mánuðinn, og það mikilvægast af öllu; að hafa vinnu.
Næsta helgi verður skemmtileg. Er smá hugsun í gangi að bjórast aðeins með vinkonum mínum hérna á eyrinni á föstudagskvöldinu og svo er það FELLLSHÍÐ á laugardag í mega pjúra hrikalegt EUROVISION PARTYYYY með öllu tilheyrandi!! Mikið hlakka ég til að hitta Önnu mína, Hermann og Blíðu sætasta hund í heimi!
Náttbuxur verða með í för ha ha ha !!!






