mánudagur, nóvember 12, 2007

Ömurlegt...

ég er gráti næst. Var að borga leigusala no 1 leigu fyrir nóvember... hann að sjálfsögðu lofar öllu fögru um að borga til baka ef hann fær leigjanda inn í mánuðinum, en þar sem hann er ekki einu sinni maður til að svara tölvupósti og símtölum frá manni þá treysti ég því nú ekki fyrr en ég sé það . bara því ég tilkynnti ekki flutning á pappír...
~ Munið það mýsnar mínar - hafa allt skriflegt ALLT!!!

1 ummæli:

Inga Hrund sagði...

Arg, en ömurlegt, þú ættir að hafa lykil ennþá fyrst að þú ert að borga leigu þarna. Ætlaði eigandinn ekki að selja íbúðina ?