fimmtudagur, febrúar 12, 2009

Fimmtudagur..

Og helgin nálgast, hrikalega hlakka ég til hennar.  Pabbi er búinn að taka út vélsleðann í Belg. Setja á hann olíu og bensín, og hann er klár uppi í Grænum lausnum.. Ætlum að gera tilraun aftur með soninn, hvort hann fáist nú ekki á sleða með afa sínum eða jafnvel Lárusi.   Hann er búinn að skoða þennann sleða oft, fá að kíkja undir seglið sem hann var geymdur undir, setjast á hann og horfir allaf á hann með stjörnur.  Svo er bara spurning hvort stjörnurnar hverfi þegar sleðinn er settur í gang!

- og já Anna þetta er Yamaha sleði :o)

1 ummæli:

Inga Hrund sagði...

Ég var nú alltaf í Polaris liðinu í gamla daga. Nú færi ég á hvaða sleða sem er ef einhver myndi bjóða mér :)