laugardagur, ágúst 04, 2007

ljóti hávaðinn...

Greinilegt að það eru einhverjir utanaðkomandi í rólega stigaganginum mínum því þvílíku ömurlegu lætin voru í nótt. Gaurar að hlaupa upp og niður stigann kallandi og æpandi, flöskuglamur og drykkjulæti úti á plani og dyrabjöllum hringt. Ef þeir hefðu vakið Gabríel þá hefði ég hringt á lögguna. Ég er kannski skrýtin en mér finnst alveg óþarfi að láta svona í miðju íbúðahverfi...

1 ummæli:

Solla sagði...

Það er ekkert leiðinlegra en hávaðasamt partý þegar maður er sjálfur að reyna að sofa heima með fjölskyldunni.