mánudagur, ágúst 20, 2007

vá nærri vika liðin...

og ekkert blogg enda er líka búið að vera mikið að gera! Stend á haus og reyni að standast söluáætlanir, þessar elskur (lituðu vélarnar) eru snilld! - langar í eina bleika verð ég að segja!!
Svo ég hef ekki mikinn tíma fyrir neitt nema Gabríel og þegar hann er sofnaður þá er ég búin á því.
Að gera eitthvað á kvöldin er lúxus sem ég hef ekki. Eftir áreiti dagsins þá hef ég ekki minnstu löngun í síma, skype, msn, sms, eða annað utanaðkomandi...
Ég nýt þess að koma heim með soninn, knúsast og leika okkur í lego. Þegar hann er sofnaður þá vil ég eiga tíma bara fyrir mig.
Þegar maður er undir stöðugu áreiti allan daginn í síma og í versluninni þá þarf maður stund fyrir sig sjálfan og þá stund hef ég bara á kvöldin, eftir átta - fyrir tíu (um tíu er ég við að sofna) til að hafa full hlaðin batterí næsta vinnudag.
Ég vona að fólk geti skilið þetta...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

kom við á blogg-flakkinu bara að kvitta fyrir mig. Skil þig svo vel að þurfa aðeins að "anda"

Inga Hrund sagði...

hæ, var að kíkja á síðuna hans Gabríels, ég gæti notað sokkabuxur á AVK ef þær eru 80-86. Kannski langt síðan að svo lítil númer hafa sést hjá ykkur ?