sunnudagur, maí 27, 2007

Köflótt gluggatjöld

og er í sveitinni hjá mömmu og pabba. Hef ekkert að segja nema sonur er happy, alltaf gaman að koma hingað til afa og ömmu. Við erum í afslöppun, fyrir utan að marka lömb. Gabríel reyndar sá það ekki, hann fór bara með að gefa fyrr um daginn og er efni í stórbónda :)
Fundum gamalt Playmobil dót sem ég hafði átt. Það fær að fara með heim á morgun, hann er svo hugfanginn af því:)
Annars hef ég bara ekkert að segja.
Er enn að venjast þeirri tilhugsun að x-ið sé flutt á eyrina og ég muni mæta honum á gatnamótum. Sem reyndar gerðist svo á föstudaginn, og hann hefur alltaf efni á að keyra um á nýja bílnum sínum sem gerir mig svo reiða. En ég hugsa bara um að ég á gullmolann minn!

1 ummæli:

J?hanna sagði...

Ég gæti alveg "keypt" mér 5 mill. króna bíl.... Ekkert út og restin á lánum :) :)

Mig bara langar það ekki!