miðvikudagur, mars 26, 2008

ábyrg móðir og single stelpa..

Og það er alltaf jafn gaman að vera til.  Er svo ánægð með hvar ég er í dag og hvað líf mitt er skemmtilegt þessa dagana! Alltaf eitthvað að gerast, fólk að poppa upp hér og þar; nýjir vinir og gamlir.

Eftir þessa dásemdar páska er maður fullur orku og úthvíldur.  Sonur minn var svo kátur að koma heim í gær, hljóp upp stigana "dótið mitt dótið mitt" Hann er svo skemmtilegur þessi gutti minn ! mamma hafði orð á því þegar ég sótti hann í gær "vá ég er bara þreytt eftir daginn hann er búinn að vera á fullu í allann dag" Já þessi sonur minn er snilld :)

Maður er á mörkunum að vera skynsamur og að sleppa fram af sér beislinu.  Getur maður ekki gert bæði? Það er svo gaman að vera til og ég vil ekki missa af einni mínútu.  Og ég vil ekki halda aftur af mér heldur.  En jafnframt vil ég ekki gera einhverjar gloríur sem mér er einni von og vísa þegar ég tek mig til :) - þið vitið hvað ég tala um sem þekkið mig :)

Ég er ekki að tala um að vilja vera á tveimur stöðum í einu, eða binda mig einhverstaðar, ég vil bara ekki loka á eitthvað strax sem gæti svo verið einhvers virði :) Það er bara oft hrikalega erfitt að vera bæði single stelpa og ábyrg móðir...

 

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

He he já þetta getur verið annsi ervitt líf þegar eru komnir afleggjarar!! Til hamingju með afmælið um daginn :) Haltu áfram að njóta lífsins! Bestu kveðjur úr borginni