mánudagur, maí 19, 2008

Gabríel lasinn

já sonur minn tók upp á því allt í einu að fá pest.  Kom svo aftan að mér þar sem hann var svo hress í gær.  Vesen í nótt og hiti og læti í morgun.  þegar hann skríður aftur uppí ból eftir miðdeigislúrinn sinn þá er hann lasinn þessi elska.

Það er erfitt að vera inni í þessu góða veðri.  Hann talar um að hann langi út, ég skil hann svo vel.  Yndislegt sumarveður hérna á Akureyri í dag.  Svo við erum heima - Bubbi Byggir og Svali er eina sem blívar :o)

Image022

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En leiðinlegt að hann sé veikur. Ef ykkur vantar eitthvað endilega láttu okkur þá vita :)